Flutt til ÍSLANDS og var á GEÐVEIKUM PRODIGY tónleikum!!! ;)
Já gott fólk... þegar maður fer svona út eins og ég gerði þá er það alltaf happ og glapp hjá hvernig fólki maður lendir og ég var bara óheppin í þetta skipti.
Því var haldið smá kveðjupartý fyrir mig á miðvikudaginn og við fórum út að borða á Pizza Hut og svo var haldið á breskan pöbb og fengið sér smá í glas og þar með talið after shock... þaðan fórum við á Marx bar og fengum okkur smá meira ... vorum með áfengi í töskunum okkar og vorum bara góðar á því og tókum það upp... spara sko ;) Svo fórum við á Didj og þaðan heim... ég gisti heima hjá Guðný og fór svo snemma um morguninn uppá flugvöll... var svo komin á klakann um 3 leytið! ;) Það var ekkert smá ÆÐISLEGT að hitta alla aftur! Og stelpur útí Lúx: ég er sko búin að fá mér ískalda appelsín og ískalda kókómjólk, bara svona láta ykkur vita ;)
Á föstudeginum voru svo PRODIGY tónleikarnir eins og flestir vita ... og þeir voru KLIKKAÐSLEGA GEGGJAÐSLEGA GÓÐIR!!!!!!!!! ég bara lifi á þessum tónleikum sko!!!!! Gæti endalaust talað um þá!!! ;) Eftir tónleikana var svo haldið niðrí bæ en þar sem var ekkert sérstakt þar þá ákváðum við að fara heim til Arnórs um 4 leytið og sátum þar nokkur fram undir morgun... ;)
Á laugardagskvöldinu var svo bara byrjað að djamma aftur... við vorum bara heima hjá Arnóri nokkur að djamma .. heavy gaman ;)
Í gær kom ég svo til eyja... það var ekkert smá æðislegt að hitta mömmu og alla aftur!!!! ;)
Ég er bara búin að vera EITT BROS síðan ég kom! ;)
